Fanney skolepigen
23.05.2007 16:44:25 / helgaf77

Nýt blogg;)

Sæl verið þið:lol: Vilti bara láta ykkur vita að ég er hætt með þessa síðu:$ Þið getið alveg verið rólg við hjónin erum búin að stofa nýtt blogg sem er blog.central.is/m22. Þið getið fylgst með okkur þar. Endilega verið dugleg að kíkja á ykkur.

 

Knús 
Fanney:haha: 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 06:47:30 / helgaf77

Jeg har fødelsdag i dag jeg blive 30 år :)

I dag er det Fanney fødselsdag!
Hurra! Hurra! Hurra!
Hun sikkert sig en gave får
som hun har ønsket sig i år
og dejlig chokolade med kage til.

Hvor smiler hun, hvor er hun glad
Hurra! Hurra! Hurra!
Men denne dag er også rar,
for hjemme venter mor og far
med dejlig chokolade med kage til.

Og når hun hjem fra skolen går,
Hurra! Hurra! Hurra!
Så skal hun hjem og holde fest,
og hvem der kommer med som gæst,
får dejlig chokolade med kage til.

Til slut vi råber højt i kor.
Hurra! Hurra! Hurra!
Gid Fanney længe leve må
og sine ønsker opfyldt få -
og dejlig chokolade med kage til.

Fyrir þrjátíu árum síðan var ung kona að því komin að fæða sitt fyrsta barn. Hún var ekki nema 17 ára. Fæðingin gekk vel í alla staði :D Klukkan 14:23 sama dag fæddi hún yndisfagra stúlku með mikið dökkt hár og svört augu.

Gekk uppeldið vel á þessu stúlku barni. Hefur ræst mikið úr henni. Í dag býr hún í Danmörku ásamt fjölskyldu sinni. Sjálf á hún yndisfagran dreng og betri eiginmann getur hún ekki átt. Ef þið eruð ekki farin að átta ykkur á því hvað fallega stúlku barn ég er að tala um – þetta er að sjálfsögðu drottningin sjálf THE GOLDEN GIRL (ég sjálf). :haha:

 

Knús og kossar

Afmælis barnið 

 

 


» 19 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 20:23:57 / helgaf77

Blogg.

Ætla að reyna að hafa þetta ekki langt að þessu sinni er ekkert í of miklu blogg stuði þessa dagana :evil:. Helgin var æði, Jóhanna vinkona og hennar fjölskylda kom og voru hjá okkur yfir helgina. Við skeltum okkur á þorrablótið hjá Íslendingafélaingu hérna í Horsens. Heppnaðist þetta blót ekkert smá vel. Ég var vinsamlega beðina að skipta gyltalitnum út og fara yfir í músalitinn þar sem það laðar bara af mér skítapakk :haha: Þeir sem eru ekki að fatta þetta þá er verið að skjóta á mig þar sem var brotist inn til okkar og 5mánðuðm eftir það var brotist inn í bílinn okkar og skólatöskuni minni stolið:lol:en bara gaman að það sé hægt að slá þessu upp í grín.

Allt á fullu í skólanum lýst bara vel á þennan bekk sem ég er í núna, fullt af skemmtilegum stelpum. Það er nú ekki mikið um að strákar fari í þetta nám reyndar er einn sem er að læra það sama og ég en svo er einn líka í bekknum mínum en hann skiptir á næstu önn yfir í verkfræðina spurning hvort maður geri það saman ó nei ég held að þetta verði fínt bara þegar ég er búin að læra þetta hehehe :lol:

Annars er ekkert mikið að frétta héðan. Það á víst að byrja að snjóa í nótt og á föstudaginn er von á snjóstormi sem ég geri nú ekki ráð fyrir að það sé eitthvað mikið :D

Nenni ekki meiru ;)

 Over

Golden girl :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 09:33:21 / helgaf77

Veikindi !!!!

Haldið þið ekki að Hilmir Snær hafi verið kominn með hita á sunnudagsnóttirna. Þegar ég kom við ennið á honum var hann sjóðandi heitur þessi elska :evil:Á mánudaginn fór hitinn alveg upp í 40,3 hann lá bara þetta litla grey og við forldrarnir gátum ekkert gert fyrir hann nema bara að vera á staðnum.

Ég ætlaði að byrja á mánudagsmorguninn með Ástu að fara í ræktina klukkan 6 en vegna lítils svefns ákvað ég bara að fara um daginn sem og ég gerði. Náði að skokka 6 km ekkert smá ánægð með það. Var komin upp í þessa vegalengd um jólin en svo tók mín sér jólafrí sem var aðeins lengra en maður ætlaði sér en það er fyrir öllu að maður er byrjaður aftur á fullu í ræktini og komin í sömu vegalengd og ég var komin í áður en ég fór í “FRÍ” :haha:

 

Annars er allt fínt að frétta af okkur. Helgin var með rólegri kantinum sem var mjög fínt. Desparetklúbburinn hittist hjá Kötu á föstudaginn í margartíu þetta var rosalega flott hjá skvísunu. Síðan vaknaði ég hress um morgunin og hringdi í Önnu til að fá Sylvíu Björt lánaða til að leika við Hilmi Snæ. Bakaði tebollur fyrir þau sem þeim fannst alveg æðislegt enda var hægt að sjá það á íbúðinni ég þurfti hreinilega að ryksuga allt húsið eftir að þau voru búin að borða tebollurnar :haha:

Um kvöldið kíktum við Ásta sæta mús á Magga dóna með krakkana þau voru ekkert smá ánægð að koma þanngað og fá hamborgara en karlarnir skelltu sér í smá vinnu til Odense á blót hjá Ísl. félaginu þar.;)

Sunnudagurinn var frekar rólegur. Við fjölskyldan fórum í keilu með Ástu og Co. Ég verð að segja að það er voða gaman að fara í keilu með börnin þau eru voða dugleg að gera þetta sjálf þó að kúlan fari nú ekkert voðalega hratt hjá þeim ;) Um kvöldið var okkur boðið í mat til Ástu og Co í þennan fína íslenska hamborgarhrygg og Renata og Kiddi mættu líka á svæði með eftirréttinn frábær endir á góðri helgi ;)

 Over

Fanney golden girl :haha:


» 13 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 20:02:29 / helgaf77

Ísland

Þá eru við fjölskyldan búin að ákveða hvernig sumarið verður hjá okkur. Við ætlum að eyða megninu af sumrinu á ÍSLANDI annars væri ég nú alveg til í að vera hérna í DK í sumar í góðaverðinu. Ég fer að vinna á mínum gamla og góða vinnustað Actavis  Hlakka ekkert smá til að komast inn á almennilega rannsóknarstofu. Þetta er nú meira tækja draslið í skólanum hjá mér að það hálfa væri nóg. Það var verið að tala um að nokkrar stelpur sem er í öðrum bekk fengu að nota nýja HPLC-tækið og var mín hugsandi Vá á skólinn sem sagt ný tæki nei vitir menn tækið er 20 ára gamalt guð má þá vita hvað tækið sé gamalt sem ég er búin að vera að nota 50 ára? :D

Á meðan á dvöl okkar stendur munum við búa hjá ástkæru foreldrum mínum sem er bara snilld. Hilmir Snær á eftir að fíla það í botn að geta verið að spila á gítarinn með Bibba afa og svo á Elsa amma alveg eftir að stjana við hann í matargerð. Hún á eftir að gera kjötsúpu handa kónginum þá þarf greyið ekki að borða upphitaða súpu eins og hann hefur gert hérna. Elsa amma hefur nefnilega verði sssssvo dugleg að senda honum hana á flöskum hingað út :haha:

Við eigum svo líka eftir að fara í sveitina til Ágústu ömmu og Jónasar afa sem verður bara gaman. Ekkert smá þægilegt að komast út í nátturuna og fara í sund hjá þeim ;:P

 

Annars er allt fínt að frétta af okkur nóg að gera í skólanum og líka í félagslífinu. Rúnar minn er á fullu að vinna að lokaverkefnu sínu þannig að þetta fer að taka enda hjá honum. Verð nú að viðurkenna það er ekkert smá gott að hafa hann svona heima. Maður þarf ekki að hugsa um þrif eða þess háttar. Þegar maður kemur heim er hann búinn að búa um rúmin, setja allt á sinn stað eftir morgunmatinn og oftar en ekki búinn að þvo þvott. Það væri samt bara snilld ef maður kæmi heim á morgun eftir skóla að minn maður væri búin að taka helgarverkinn heheheheheheeheheheh :haha: Bara grín ástin mín :haha:

 

 

 

 

Elsku Tinna mín til hamingju með afmælið á mándaginn og pabbi til hamingju með afmælið á morgun (08.02.2007) :haha:

Elsku mamma og pabba innilega til hamingju með 20 ára brúðkaupsafmælið. Æðislegt að sjá hvað þið eruð enn hamingjusöm og getið ekki verið án hvorts annars. Finnst mér líka æðislegt að þið eigið ykkur sameiginlegt áhugamál sem er golf og Hilmir Snær. Þið eru æði í alla staði:haha:

 

 

Knús

Fanney Golden girl ;)

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 10:25:35 / helgaf77

STRÁKARNIR OKKAR

Rosalega var leikurinn spennandi í gær ég var sko að missa mig yfir honum. Ég gat ekki einu sinni sett strákinn í rúmið á meðan þessu stóð enda vorum Renata, Kiddi, Kristjana, Ásta sæta mús, og Emíla hjá mér en svo mætti eiginmaðurinn og Bjöggi á svæði til að horfa líka á leikinn. Hilmir Snær var nú ekki alveg að fíla öskrinn í mömmu sinni get ég sagt ykkur. Hann er með sssssvo lítið hjarta þessi elska. En mér fannst þeir standa sig alveg frábærlega og þetta eru enn “STRÁKARNIR OKKAR” við megum ekki gleyma að þeir eiga eftir að keppa við Rússana og ef þeir vinna þann leik sem þeir og gera ;) þá keppum við um 5.sætið sem ég er alveg vissum að við lentum í.

Tapið hefur samt eitthvað farið illa í mína þar sem ég vaknaði í morgun að drepast í maganum ógeðslega flögurt að ég treysti mér ekki í skólan. ÉG ER EKKI ÓLÉTT J

 

 



Annars var helgin alveg yndisleg. Á föstudagskvöldið fór ég til Líneyjar í Desperate klúbbinn góða. Fengum þessa sjúklega góðu ostaköku hjá henni. Ég verð nú að segja ég hef aldrei séð fara svona mikið af einni köku ofan í 6 konur við misstum okkur alveg ofan í kökuna get ég sagt ykkur ;)

Á laugardaginn vaknaði yndislegi eiginmaður minn með kóngnum okkar og leyfðu mér að sofa til rúmlega 9 J Þegar ég vaknað þá dreif ég þá út því að veðrið var svo ynislegt það sást til sólar aldrei þessu vant. Við löbbuðum niður í bæ fórum í HM og þar keypti ég mér pils sem ég sá deginum áður en var ekki alveg viss hvort ég ætti að kaupa það en ég gat ekki hætt að hugsa um það þannig að ég lét verða af því að fá mér það J Eftir það fórum við á kaffihús, Hilmir Snær finnst það geðveikt gaman að fá að sita inná kaffihús og fá sér að borða.Eftir bæjarferðina fórum við á afmæli til Björvin Franz og Hlyns hittum fullt af skemmtulegu fólki ;)

Sunnudeginum vaknaði ég með kóngnum og leyfðum eigimanninum að sofa. Á meðan hann svaf fórum við út í bakarí, þegar við komum heim þá gerði ég baunasalta og “búst” þegar ég var búin að því og kóngurinn búinn að leggja á borð þá fór kóngurinn að vekja pabba sinn. Karlinn ekkert smá ánægður með frammistöðuna hjá eiginkonuninni og syni.

Fórum síðan á bókasafni að taka nokkrar skemmtilegar bækur fyrir mig og kónginn en eftir það fórum víð til Kolding að hitta Hannes og Co. Horfðum á tapleikinni á móti þjóðverjum. Borðum með þeim lambalæri rosagóður matur hjá þeim.

 

 



Ætla ekki að hafa þetta lengra vondandi nenntu þið að lesa þetta allt saman J

 

 



Over

Fanney golden girl J


» 12 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 17:45:33 / helgaf77

Blogg fyrir helgina

Smá blogg fyrir helgina. Vikan er búin að vera mjög róleg á M22. Var í skólanum mánudag og þriðjudag er svo búin að vera í fríi. Byrja aftur eftir helgina í nýju bekk sem ég kvíð pínu fyrir en ég er vissum að þetta verður auðveldara en þegar ég byrjaði í skólanum fyrst en ég get nú ekki sagt að ég hafi talað miklu dönsku þá. Hef farið mikið fram síðan þá! núna get þó verið í spjallað með mínum samnemendum.

Fullt að gerast þessa helgina. Í kvöld er ég að fara til Líneyjar í Desperat klúbbinn góða :lol: Er farin að hlakka til að hitta skvísunar, hef sama sem ekkert séð þær síðan fyrir jól fyrir utan að sjálfsögðu hana Ástu mína :D Á laugardaginn erum við að fara í afmæli til Björgvin Farnz sem varð 3 ára á miðvikudaginn og pabbi hans, hann Hlynur verður twenty twelve á laugardaginn sjálfan. Svo er það spruning með sunnudaginn hvað við gerum þá? Kannski við gerum eitthvað sniðugt eins og að taka sér góðan göngutrú við litla fjölskyldan ;)

Í dag fór ég með Ástu sætu mús og Valdísi í bæinn kíktum aðeins í HM, ætlaði ekki að kaupa mér neitt en endaði með að kaupa geðveikt flottan bol. Þeim fannst nafnið mitt standa á bolnum sem ég er nú alveg sammála þeim. Hann er gyltur og svartur hann á eftir að passa geðveikt við skóna sem mamma og pabbi gáfu mér um jólin. Maður er eitthvað svo gyllt þessa dagana. Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra Ásta sæta mús er komin til mín búin að opna ein kaltan ætlum samt að vera rólegar í kvöld en lofa engu ;)

Golden girl :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 10:05:28 / helgaf77

Nýtt blogg

Er ekki málið að fara að blogga aftur :)Eins og þið flest vitið á ég að vera búin að vera í prófum en því miður þá komst ég ekki í þau próf sem ég átti að taka vegna veikinda. Lenti á spítala og alles! Daginn sem ég átti að fara í fyrsta prófið mitt. Ekkert alvarlegt en mín er alveg búin að ná sér núna ;)En ég hef samt ákveðið að taka þessa önn aftur treysti mér ekki alveg að taka prófin ég vil ekki bara rétt ná þeim með 6. Því námið sem ég er í skiptir svo miklu máli með að vera með sem hæstu einkun uppá praktik að gera. Mig langar nefnilega að taka praktikina mína hérna úti. Við hjónin erum nefnilega að fíla okkur í botna í DK. Er þá ekki bara málið að vera sem lengst í skólanum til að lengja dvölina hérna svo er aldrei að vita að við eigum eftir að setjast hérna að maður veit aldrei Annars er nú ekkert mikið að frétta af mér og mínum8|

Rúnar er byrjaður að vinna að loka verkefninu sínu. Hilmir Snær stækkar og stækkar. Er alltaf jafn duglegur að stjórna mömmu sinni fær ekki eins mikið að stjórna pabba sínum.

Guð ég er að gleyma einu hérna. Við fórum í mat til Renötu og Kidda á laugardaginn. Þegar krakkarnir eru búin að borða þá fara þau inn í herbergi að leika sér á meðan við fullorðna fólkið erum en að borða, svo allt í einu eru þau búin að loka herberginu og Kiddi segir svona finnst ykkur ekki orðin frekar hljótt hjá þeim og við förum eitthvað að djóka með það ætli að þau sé ekki byrjuð í læknisleik. Kiddi fer og ath með þau og allt í einum heyrum við Kidda segja nei það má ekki potta í rassin við stöndum öll upp til að ath hvað er í gangi þá er Hilmir Snær með dóta sprautu í höndunum og Kristjana liggur upp í rúmi með lappirnar upp i loftið sem betur fer í sokkabuxum og þau segja bæði að Hilmir sé að lækna Kristjönu og hún eigi að fá meðal í rassinn. Á meðan að þessu stóð sat Emilía og lék sér í dúkkuleik og hafði engan áhuga á þessu afhæfi þeirra;) Þannig að ég er búin að komast að því að sonur minn er byrjaður í læknsileik. Að mínu mati finnst mér það aðeins of snemmt hann er nú ekki nema 3 ára :haha:

Over Fanney


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 16:36:55 / helgaf77

Er í prófum......................................

Hæ vildi láta vita af mér er í prófum núna þannig að ég er ekki mikið að blogga eins og er ;) Er í prófum til 17.janúar verð í bandi  þegar ég er búin í þeim :D

Hilsen

Fanney


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 20:27:26 / helgaf77

13 dagar til jóla

Það er komið 11.desember og ekki nema 13.dagar til jóla :lol:Á fimmtudaginn í seinustu viku fór ég og hitti Despreate klúbbinn heima hjá Kötu. Hún og Óskar maðurinn hennar voru að kaupa sér hús hérna í Horsens ekkert smá flott hús. Væri alveg til í að eiga það ;) Það var rosaleg gaman hjá okkur. Við (ég, Ásta, Rakel og Kata) ákváðum að kíkja svo á Líney þar sem hún komst því miður ekki þar sem Bent þurfti að fara út. Fékk að sjá snúlluna þeirra í fyrsta skipti ekkert smá sætur drengur þar á ferð  Helgin var yndisleg í alla staði.

Á föstudagskvöldið fengum við Ágúst Birgi vin hans Hilmi Snæ lánaðan í náttfatapartý. Gerðum heima tilbúna pizzu en strákanir hjálpuðu til við að setja ost á pizzuna ekkert smá duglegir þessar elskur :haha: Eftir matin þá var klætt sig í náttfötin. Komum okkur svo öll vel fyrir framan sjónvarpið. Poppað var handa strákunum og við fengum að sjálfsögðu okkur líka popp. Þegar klukkan var orðinn 19:30 þá var farið upp að bursta tennurnar hjá drengjunum og settir í rúmin sín þeir stein sofnuðu báðir um leið og þeir lögðust á koddana sína. Þeir voru orðnir svo þreyttir eftir vikuna á leikskólanum.

Laugardaginn fórum við fjölskyldan í Den Gamle bye í Århus. Þar er verið að sýna hvernig Danir bjuggu fyrir 300 árum. Hilmir Snær fannst nú ekkert voða góð lykt þarna. Fóurm á kaffhús fengum okkur heitt kakó og eplaskífur voða kósý. Síðan fórum við til Línu og Sigga að sjá snúlluna þeirra. Ekkert smá sæt skvísan þeirra. Hilmir Snær var alveg óður að fá að halda á henni en mér fannst hún alltof lítil og hann að sjálfsögðu líka alltof lítil til að halda á henni. Ég fékk að skipta á henni :P Haldið að mín hafi ekki verið búin að kúka :haha: bara gaman af því.

Sunnudagurinn fór í það að gera garðin að framan jólalegan. Síðan kíktu Ragnheiður, Rúnar og Sævar til okkar síðan komum Stína og Ágúst Birgir og svo í lokin komum Kiddi, Renata Kristjana Lind til okkar. Sem sagt margt um manninn hjá okkur á sunnudeginum. Því miður hittum við ekkert Ástu,Bjögga og Emilíu þessa helgina. Hilmir Snær talaði mikið um það hann væri ekkert búin að sjá hana Emilíu sína. Enda er hann vanur að sjá hann næstum hverja helgi :D En þau hittast mikið næstu helgi sem er mjög gott.

Annars gengur skólinn sinn vana gang hlakka til þegar þessi önn sé búin :lol: get nú ekki sagt að mér finnist þetta lið skemmtilegt sem er með mér í skóla en ég vona að þetta fari batnandi á næstu önn. Jólakveðjur Fanney jólaskvísa


» 13 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 19:51:34 / helgaf77

Hóhóhóhó 21 dagur til jóla

Á miðvkudagskvöldið hittist Despreate klúbburinn hjá Rakel geðveikt gaman hjá okkur. Ég náði að horfa á 3 þætti en ákvaða svo að drífa mig heim þar sem ég var með barnapössun fyrir Hilmi Snæ og vildi ekki halda henni oflengi en þegar ég koma heim var þá ekki Rúnar minn kominn heim hann ákvað að vera ekki oflengi að læra þar sem hann væri að fara í prófið daginn eftir. Kvöldið áður var hann komin heim klukkan 03:30 um nóttina þannig að mín bjóst ekki við elskunni heim fyrir 00:00 þetta kvöldið. Hann er svo duglegur þessi elska þannig að hann er búinn með eitt próf af 4 fer í næsta prófið sitt á þriðjudaginn. Þannig að hann er búin að vera að læra alla helgina upp í skóla þannig að ég og Hilmir Snær erum ekki búin að sjá mikið af honum þessa helgina :whut: en þetta lagast allt saman um miðjan janúar ;:D þegar ég er búin í mínum prófum. Maður verður bara að líta á björtu hliðarnar á þessu :P Á föstudaginn tók ég smá jólahreingerninguna hérna og byrjaði að setja upp smá jólaskraut síðan fórum við fjölskyldan og Emilía til Kolding til Hannear og Co. þar sem Hannes var búin að bjóða okkur í smá afmælis dinner. Fengum við í forrétt sveppasúpu a la Hannes ;) geðveikt góð hjá honum, í aðalrétt fengum við rif og tilheyrandi með því og síðan í eftirétt fengum við eplaskífur namminamminammm;:P Fengið sér smá rauðvín með matnum;;) Á laugardaginn fórum við Ásta í smá Bilkaleiðangur ;)Eftir að ég koma heim frá Bilka klárði ég að setja upp jólaskrauti. Núna er ég búin að skipta limegræna litnum út og búin að setja rautt í staðinn fyrir hann. Um kvöldið komum Ásta, Bjöggi og Emilía í mat til okkar. Gáfum við fyrst krökkunum að borða og þegar þau voru farin að sofa þá fengum við okkur að borða og horfðum á prison break tvo þætti eigum sem sagt 13 þáttinn eftir. Þetta er orðið ekkert smá spennandi. Í dag fór ég svo með Hilmi Snæ, Stínu og Ágúst Birgi í jólaföntur hjá Íslendingafélaginu. Heppnaðist mjög vel hjá þeim ;:P Hilmir Snær skreytti þessar líka flottu piparkökur!

Jólakveðjur

Fanney jólapía :lol:


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 20:13:16 / helgaf77

28.nóvember 2006

Hæ af mér er allt fínt að frétta. Ég og Hilmir Snær fórum til Ísland núna þann 15.nóvember og vorum til 21.nóvember. Þetta var ákveðið deginum áður en við fórum. Hilmir Snær var ekkert smá ánægður að fá að fara í flugvélina til að fara í rauðahúsið eins og hann kallar það ;) Þessi elska var ekkert smá góður á leiðin til Íslands en annað mál á leiðinni heim aftur til DK sofnaði ekki neitt heldur létt mömmu sína dekra við sig :DÞað var mjög fínt að komast til Íslands og hitta alla þar en því miður náði ég ekki að hitta alla þá sem ég hefið viljað. En ég heimsæki þá bara næst þegar ég kem til Íslands. Annars er allt fínt að frétta af mér og minni fjölskyldu hérna í DK. Rúnar minn er á fullu í prófum núna þannig að við erum ekki búin að hittast mikið síðan ég kom aftur til DK en hann klára 13.des en þá verð ég byrjuð á fullu að lesa sjálf undir mín próf :whut: Ég fer því miður ekki í próf fyrr en í janúar sem er að vísu gott og slæmt. Ég get þá alveg séð um Hilmi Snæ núna og svo verður Rúnar með hann á meðan ég er í prófum. Þegar ég er svo búin í prófunum þá ætlum við fjölskyldan að reyna að fara í sumarbústað hérna og hygga okkur þar 3 saman sem verður æði. Við ætlum ekki að fara heim um jólin þar sem ég er í prófum í janúar en við erum ssssvo heppin að elskulega mamma mín og elskulegi pabbi minn ætla að koma og eyða jólnum hérna með okkur. Því miður þá kemst ekki brósinn minn með og Ingibjörg kærasta hans :whut: Jæja ég ætla ekki að hafa þetta oflangt og ég vona að ég láti heyra í mér fljót aftur :P

Hilsen Fanney


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 07:40:11 / helgaf77

Langt blogg :)

Halló allir. Skólin er byrjaður á fullu. Þegar ég byrjaði í skólanum vorum við sett í gruppur og í fyrstu fannst mér ég vera í æðislegri gruppu 3 danir. Ok byrjaði allt voða vel hjá okkur, 3 skvísur ( með mér ) og ein strákur. Við þurftum svo að skipta okkur í tvær gruppur þannig að Pernilla og Susanne eru saman og ég er með Jan. Fannst það í frystu ekkert smá æðislegt ég nefnilega skil hann best þegar hann talar dönsku :) talar hana frekar skýrt og ekki of hart fyrir mig ;) nei vitir menn haldið þið ekki að hann sé búin að vera meira og minna veikur takk fyrir. Fyrst var hann veikur, síðan varð konan hans og barn veikt þannig að hann þurfti að vera heima til að sinna þeim svo stak sonur hans puttanum í augað á honum og hann þurfti að vera frá í 4 daga vegna þess. Er ekki alveg að skilja þetta þar sem ég fékk eitt skipti sýru í bæði augun í vinnuni og þurfti að vera með lepp fyrir bæði augun það sem eftir var af deginum og yfir nóttina ég var mæt í vinnu daginn eftir en ég er bara ssssvo dugleg ;) Ok svo hélt ég að þessi veikindi væri búin hjá greyið karlinum nei takk fyrir haldið þið ekki að hann sé komin með lungabólgu sem að sjálf sögðu getur ekkert gert af. En skvísurnar tvær halda sér alveg útaf fyrir sig svo þegar ég spyr af eitthverju þar sem ég er nú að vinna verkefni fyrir tvo þá svara þær varla og ég þarf að fara í aðra gruppur að spurja svo fyndna við þetta að þær fljótar að koma til mín ef þær eru ekki vissar hvað á að gera og ég að sjálfsögðu eins og asni svara þeim alltaf. Við erum að fara að gera annað verkefni í öryggismálum á rannsóknarstofum en ég verð í annari gruppu í því verkefni og hún er ekkert betri. Verð við erum fjórar saman tvær danskar, ég og ein frá Víetnam hún heitir Hang ég á ssssssvo erfitt með að skilja hana að það hálfa væri nóg. Hún heldur örugglega að ég sé þvílíkt heimsk ég nefnlega bara hreinlega skil ekki hvað hún er að segja þegar hún er að tala við mig og ég reyni bara að geta hvort ég eigi að segja ja eða nej og stundu á ég kannski að segja ja þegar ég segi nej 8|

Á fösdaginn seinasta var okkur boðið í grill til Ástu og Bjögga. Eftir matin komum við krökkunum í háttin fórum svo að spila trivial pursuet. Vitir menn við Ásta unnum strákana ekkert smá klára skvísur. Þeir eru ekkert smá ósáttir við þetta segja að þeir hafi gefið okkur fullt af sjénsum sem er ekki rétt hjá þeim það vorum við sem gáfum þeim fullt af sjénsum því að við viltum ekki vinna þá of stórt. Vildum ekki alveg eyðileggja karlmennsku þeirra :D

Annars er allt fínt að frétta af okkur fjölskylduni hérna í DK. Ég fór á Íslendingaball seinustu helgi það var ekkert smá skemmtilegt ball. Ég og Ásta skvísa skemmtu okkur alveg konuglega fréttum daginn eftir að Bjöggi hafi eitthvað verðið að monta sig af snáknum sínum ( núna verður fólk að nota ímynduraflið til að fata hvað snák hann var að tala um ) ég og Ásta brjáluðumst úr hlátri daginn eftir þegar Bjöggi var að segja okkur frá þessi. Alla vikuna þá pompar þetta upp í hugan á mér og ég byrja bara að hlægja þvílíkt:haha:

Hilmir Snær byrjaði á sundnámskeið seinasta sunnudag. Hann, Emilía og Ágúst Birgir ætla að vera saman á þessu námskeiði. Hilmir Snær er eitthvað að verða vatnshræddur sem er ekki að ganga upp þannig að við hjónin vonum að sundnámskeiðið hjálpi honum eitthvað að vinna á því. Hilmir Snær og Emilía ætla að líka að fara í fimleika saman og það er á miðvikudögum það hefur samta ekk náðst að skrá þau og vonandi komast þau bara á það námskeiðið ;)

Okkur hjónum var svo boðið í mat til Hjalla og Ingu á miðvikudaginn. Fengum hana Stínu að passa fyrir okkur ekkert smá fín stelpa. Það hefur líka aldrei komið fyrir að Hilmir Snær vakni daginn eftir og fer að spyrja um barnapíuna sína daginn eftir. Allavegna hefur hún beit eitthverjum töfrum á hann og það fyrsta sem hann gerði daginn eftir þegar hann vaknaði að spurja hvar er Stína væri og fór að segja mér að hún væri svo skemmtileg :P Snú okkur aftur af matnum hjá Hjalla og Ingu fengum þvílíkt góðan kjúkling hjá þeim með öllu tilheyrandi. Takk æðislega fyrir okkur Hjalli og Inga.

Vá ég held að það sé komið gott í bili

Over out Fanney


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 22:03:23 / helgaf77

Loksins loksins I´m here

Það er nú margt búið að gerast síðan ég bloggið seinast. Hér með ætla ég að biðja ykkur sem komið reglulega á síðuna mína að vera dugleg að skamma mig þegar það líður svona langt á milli blogga hjá mér og hananú :evil:

Ég er búin að fara á Madonnu og hún vara bara geðveik get ég sagt ykkur.Rúmlega viku seina fór ég á Rollings Stones bara góðir get ég sagt ykkur. Pabbi koma og brósi til að fara með okkur.

Skólin er byrjaður á fullu maður skilur núna miklu meira en maður gerði þegar maður byrjði í janúar. Vonum bara að þessi önn fari eins vel og hin gerði.

Gestagangur fram undan hjá okkur sem er bara gaman. Við hjónin byrjum á því að fara þann 12.október – 15.október til Köben. Ásta og Bjöggi fara með okkur þar munum við hitta Bettý, Einar og Ketill sem verður bara gaman. 16.október kemur pabbi (Jónas) og öll hans fjölskylda. 27.október koma tengdó og Viktoría , Erla kemur þann 01.nóvember síðan um jólin koma mamma og pabbi þannig að við erum ekki að fara heim um jólin. Enda á það ekki eftir að ganga upp já mér þar sem ég verð í prófum í janúr gaman gaman eða þannig. Þau verða búin þann 17.janúr þá fer ég í 2 vikna frí og vonum bara að ég sé að fara á 3.sem þá ;) Jæja ég ætla að láta þetta nægja að sinni en lofa engum um hvenær ég blogg næst við skulum nú samt vona að það líði ekki langt í það :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 16:45:05 / helgaf77

Ísland

Núna er maður komur til Íslands ekkert smá ljúft skal ég segja ykkur. Það var alveg frábært að sjá Hilmi Snæ og Rúnar út á flugvelli meiri segja koma hann Fannar líka. Hilmir Snær var nú smá feimin við hann mömmu sína en það fór nú fljótt af honum.

Ég mætti strax í vinnu á miðvikudeginum sem var fínt. Fínt að hitta alla vinnufélagana aftur.

 

 



Úpps ég gleymi mér nú alveg að segja frá því að hún Sylvía systir kom til mín til DK á föstudeginum. Þetta er nú bara fyndið að segja frá því. Málið var nefnilega að ég átti að hitta kennarann minn á mánudeginum til að fá að vita hvernig mér gekk í prófunum (gekk mjög vel að mínu mati fékk 8 og náði parktik prófinu mínu er sem sagt komin á 2.semester :haha: ) nei haldið þið að hann hafi ekki breyt því á miðvikudeginum og bað mig um að hitta sig á föstudeginum. Ég hugsaði þá með mér jú frábært kemst þá fyrr heim og kem karlinum á óvart. Ákvað að breyta fluginu mínu og koma með kvöldvélinni á föstudeginum. Ég hugsa mér jæja það er best að segja Sylvíu frá þessu og hún verður eitthvað voða skrýtin í símanum og segir að það gangi ekki upp þar sem hún hafi ætlað að koma mér á óvart. Þá átti hún flug sjálf á föstudeginum. Þannig að ég þurfti að hringja aftur í mömmu og segja henni að baka með að breyta mínu flugi þar sem að systa væri að koma. Við skemmtum okkur mjög vel saman og hlakka til að fá hann aftur í heimsókn og aldrei að vita að það gangi upp hjá henni að koma mér á óvart þá :haha: 

 

 



Á miðvikudaginn ætlum við hjónin að halda upp á afmælið hans Hilmis Snæs ég trúi þessu varla að hann er að verða 3 ára þessi elska mér finnst eins og hann hafi fæðst í gær.Skrifa allt um afmælið í næsta bloggi

 

 



Bið að heilsa að sinni

 

 



Fanney á Íslandi

» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2